„Við náðum aðeins að draga andann í seinni hálfleik og einbeita okkur að því að spila fótbolta," sagði Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, eftir 1-0 útisigur á Tindastóli í kvöld.
„Við náðum aðeins að draga andann í seinni hálfleik og einbeita okkur að því að spila fótbolta," sagði Páll en það voru læti í leiknum.
„Ég er með aggressíva stráka og maður er kannski ekki nægilega snjall að tempra þetta niður og halda aðeins meiri ró. Þetta var kannski óþarflega mikil læti og öskur miðað við hvernig staða liðanna eru í deildinni."
Hvernig fannst honum frammistaða dómarans?
„Dómarar eiga slaka leiki eins og leikmenn. Þórsarar áttu slakan dag miðað við getu og dómarinn átti líka slakan dag miðað við getu."
Þrátt fyrir að Þór hafi tryggt sér sigur í deildinni fyrir lokaumferð segir Páll að deildin hafi ekki verið auðveld. „Það voru engir leikir þar sem við gátum mætt með hubba-bubba og haldið að við værum hrikalega góðir."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.





















