Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   fös 20. maí 2016 15:10
Magnús Már Einarsson
Ginola gífurlega heppinn að vera á lífi
Mynd: Getty Images
David Ginola, fyrrum leikmaður Newcastle, Tottenham, Aston Villa og Everton, er á spítala í Monaco að jafna sig eftir hjartaaðgerð í gær.

Hinn 49 ára gamli Ginola fékk hjartaáfall í Suður Frakklandi í gær þegar hann var að spila fótbolta.

Ginola er gífurlega heppinn að vera á lífi en þetta segir læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina.

„Halló heimur, hef aldrei sofið betur. Ég er í lagi, þarf bara smá hvíld," sagði Ginola á Twitter í dag.

Ginola átti nokkur góð tímabil á Englandi og var meðal annars valinn leikmaður ársins tímabilið 1998/1999.
Athugasemdir
banner
banner
banner