Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði kvenna, hefur birt færslu á Twitter þar sem hún lýsir yfir stuðningi við Guðna Bergsson fyrir formannskosningar hjá KSÍ á laugardaginn.
Sara, sem hefur leikið með íslenska landsliðinu síðan 2007, er ekki ánægð með Geir Þorsteinsson sem var áður formaður en Geir sækist nú eftir endurkjöri.
Sara, sem hefur leikið með íslenska landsliðinu síðan 2007, er ekki ánægð með Geir Þorsteinsson sem var áður formaður en Geir sækist nú eftir endurkjöri.
„Guðni er Topp maður ! Búin að sýna okkur stelpunum í landsliðinu mikinn stuðning síðan hann tók við ! Get ekki sagt það sama gagnvart Geir, hafði lítinn sem engan áhuga eða tíma fyrir kvennalandsliðið á þeim tíma !" sagði Sara á Twitter í dag.
Dagný Brynjardóttir, landsliðskona, birti einnig færslu á Twitter í gærkvöldi þar sem hún lýsti yfir stuðningi við Guðna.
Formannskosning milli Geirs og Guðna fer fram á ársþingi KSÍ á laugardaginn en samkvæmt könnun Stöð 2 í gær er Guðni mun sigurstranglegri. Þriðjungur aðildarfélaga svaraði í könnunni og þar fékk Guðni 88% atkvæða.
Guðni er Topp maður ! Búin að sýna okkur stelpunum í landsliðinu mikinn stuðning síðan hann tók við ! Get ekki sagt það sama gagnvart Geir, hafði lítinn sem engan áhuga eða tíma fyrir kvennalandsliðið á þeim tíma ! #KSIformadur
— Sara Björk (@sarabjork18) February 7, 2019
Athugasemdir