Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mið 06. febrúar 2019 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dagný: Guðni í töluvert meiri samskiptum við kvennaliðið
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú standa yfir kappræður á milli Guðna Bergssonar, sitjandi formanns KSÍ, og mótframbjóðanda hans, Geirs Þorsteinssonar, í beinni á Stöð 2 Sport.

Það verður kosið á milli þeirra á ársþingi KSÍ þann 9. febrúar.

Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, vill greinilega halda Guðna áfram. Hún segir á Twitter í kvöld:

„Þau átta ár sem ég hef spilað með A-landsliði kvenna var Guðni í töluvert meiri samskiptum við kvennaliðið. Geir virtist of upptekinn fyrir eitthvað annað öll sjö árin á undan. Guðni er líka góð manneskja, splæsti á óléttu mig á Lemon þegar posarnir lágu niðri!"

Dagný er 27 ára miðjumaður en hún hefur skorað 22 mörk í 76 landsleikjum á ferlinum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner