Erik Hamren landsliðsþjálfari Íslands var spurður á fréttamannafundi KSÍ í dag hvernig staðan væri á markmannsmálunum hjá landsliðinu og hvort hann væri ákveðinn í því hver væri aðalmarkmaður landsliðsins.
Erik tók sér smá tíma til að hugsa áður en hann svaraði spurningunni.
Erik tók sér smá tíma til að hugsa áður en hann svaraði spurningunni.
„Við erum með þrjá góða markverði og ég er ánægður með markmannsstöðuna. Hannes er hinsvegar númer eitt, en við höfum tvo aðra góða markverði en Hannes er númer eitt,” svaraði Erik Hamren.
Hannes Þór hefur lítið spilað með Qarabağ í Azerbaijan síðustu vikur og hefur þurft að verma varamannabekkinn í leikjum Qarabağ.
Í landsliðshópnum hjá Íslandi eru einnig Rúnar Alex Rúnarsson og Ögmundur Kristinsson.
Ísland mætir Andorra og Frakklandi á útivöllum í fyrstu leikjum sínum í undankeppni EM. Hér má sjá hópinn í heild sinni.
Athugasemdir