Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. apríl 2019 20:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fjórtán ára leikmaður Dortmund skrifar undir hjá Nike
Mynd: Getty Images
Youssoufa Moukoko, leikmaður Borussia Dortmund, hefur skrifað undir stóran samning við Nike. Það er athyglisvert í ljósi þess að hann er aðeins 14 ára gamall.

Moukoko hefur slegið í gegn með unglingaliðum Dortmund. Á þessu tímabili hefur hann skorað 36 mörk í 21 leik með U17 liði Dortmund.

Eftir þessa frábæru frammistöðu er hann kominn á samning hjá Nike, eins og margir af fremstu íþróttamönnum heims.

Þýska dagblaðið Bild segir frá því að Moukoko sé nú þegar búinn að fá 1 milljón evra út af samningnum og gæti hann fengið 9 milljónir evra til viðbótar ef hann heldur áfram að gera það gott.

Moukoko má ekki leika sinn fyrsta leik fyrir aðallið Dortmund fyrr en hann verður 16 ára á næsta ári. Það verður afar spennandi að fylgjast með þessum leikmanni í framtíðinni.




Athugasemdir
banner
banner
banner