Nicolas Pepe, 24 ára gamall vængmaður sem er á mála hjá Lille í Frakklandi, er í viðræðum við Liverpool. Þetta segir Mohamed Bouhafsi, blaðamaður RMC Sport í Frakklandi.
Pepe hefur verið orðaður við mörg af stærstu félögum Evrópu. Bayern München er meðal annars talið hafa mikinn áhuga á honum.
Hann skoraði 22 mörk og átti 11 stoðsendingar á nýliðnu tímabili er Lille hafnaði í öðru sæti í frönsku deildinni.
„Lille er að ræða við Liverpool og Lille hefur staðfest þetta. Leikmaðurinn er að ræða við Liverpool. Liverpool er ekki eina félagið á eftir honum. Nú bíðum við eftir hans ákvörðun," sagði Bouhafsi þegar hann svaraði stuðningsmanni Liverpool á Twitter. Bouhafsi þykir nokkuð áreiðanlegur þegar kemur að félagaskiptamarkaðnum.
Liverpool Echo segir hins vegar að Liverpool hafi hvorki rætt við Lille eða Pepe.
Lille discusses with Liverpool. Off the record, Lille confirms that. The player is talking to Liverpool. Liverpool is not all alone on the player. Now we are waiting for his decision.
— Mohamed Bouhafsi (@mohamedbouhafsi) June 9, 2019
Athugasemdir