Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 11. júní 2019 11:00
Arnar Daði Arnarsson
Lið 6. umferðar: Þrjár í þriðja sinn
Aníta Lind er í liði umferðarinnar.
Aníta Lind er í liði umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dóra María er í liðinu.
Dóra María er í liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
6. umferðin í Pepsi Max-deild kvenna fór fram í síðustu viku og lauk með tveimur leikjum á föstudagskvöldið.

Nýliðar Keflavíkur unnu sinn fyrsta leik í sumar með 4-0 sigri á KR. Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur er þjálfari umferðarinnar.


Aníta Lind Daníelsdóttir og Natasha Anasi áttu glimrandi leik í liði Keflavíkur í leiknum og skorðu þrjú mörk Keflavíkur.

Þeim Keflavíkingum í vörninni er síðan Selma Sól Magnúsdóttir
Þóra Jónsdóttir leikmaður Selfoss er djúp á miðjunni en hún átti flottan leik þrátt fyrir 0-1 tap gegn Þór/KA á heimavelli. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er fulltrúi Þórs/KA í liði umferðarinnar ásamt Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur í markinu.

Elín Metta Jensen gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk fyrir Val í 6-0 sigri á Fylki. Elín Metta er komin með níu mörk í fystu sex leikjum sumarsins. Dóra María Lárusdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir eru einnig í liði umferðarinnar.

Þá er Cloé Lacasse í liði umferðarinnar en hún var best Eyjastelpna í 3-1 sigri liðsins á HK/Víkingi.

Sjá einnig:
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner