5. umferðinni í Pepsi Max-deild kvenna lauk í gær með 4-2 sigri Breiðabliks á KR í Kópavoginum.
Valur og Breiðablik eru enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga á meðan Keflavík er enn án stiga á botni deildarinnar eftir 2-1 tap gegn Þór/KA á heimavelli í umferðinni.
Valur og Breiðablik eru enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga á meðan Keflavík er enn án stiga á botni deildarinnar eftir 2-1 tap gegn Þór/KA á heimavelli í umferðinni.
Þjálfari umferðarinnar er Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV eftir 5-0 sigur liðsins á Stjörnunni á heimavelli. Cloé Lacasse skoraði þrennu í leiknum og er í liði umferðarinnar ásamt Rögnu Söru Magnúsdóttur og Emmu Rose Kelly.
Í markinu er Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir sem hafði nóg að gera í 2-1 sigri Þórs/KA gegn Keflavík. Arna Sif Ásgrímsdóttir er síðan í miðri vörninni. Þá er Sveindís Jane Jónsdóttir í liðinu þrátt fyrir að vera í tapliði.
Kristín Dís Árnadóttir fór á kostum í 4-2 sigri Breiðabliks á KR. Hún stóð vaktina vel í vörninni og skoraði auk þess tvívegis í leiknum. Hildur Antonsdóttir var einnig traust á miðjunni.
Karólína Jack er fulltrúi HK/Víkings í liði umferðarinnar eftir 2-1 endurkomusigur á Fylki í Árbænum.
Þá eru reynslu boltarnir í Val þær Elín Metta Jensen og Margrét Lára Viðarsdóttir í liðinu en þær voru virkilega góðar í 4-1 sigri liðsins á Selfossi. Elín Metta skoraði til að mynda þrennu í leiknum.
Sjá einnig:
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir