Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 02. ágúst 2019 14:00
Arnar Daði Arnarsson
Pétur Theodór spáir í 15. umferðina í Pepsi Max
Pétur Theodór er markahæsti leikmaður Inkasso-deildarinnar.
Pétur Theodór er markahæsti leikmaður Inkasso-deildarinnar.
Mynd: Hulda Margrét
ÍBV tekur á móti HK á Þjóðhátíð.
ÍBV tekur á móti HK á Þjóðhátíð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
15. umferðin í Pepsi Max-deild karla hefst á morgun með leik ÍBV og HK í Vestmannaeyjum. Leikurinn hefst klukkan 14:00 en búast má við góðri mætingu á leikinn enda fer leikurinn fram á sjálfri Þjóðhátíð.

Umferðin heldur síðan áfram í næstu viku þegar leikir fara fram á þriðjudag og miðvikudag.

Pétur Theodór Árnason leikmaður Gróttu er markahæsti leikmaður Inkasso-deildarinnar eftir fimmtán umferðir. Hann ætlar að spá í 15. umferðina í Inkasso-deildinni en Jóhann Skúli Jónsson spáði fjórum leikjum rétt í síðustu umferð.

ÍBV 0 - 2HK (14:00 á laugardag)
Coach of the year candidate Brynjar Björn nýbúinn að sækja Binna bolta. Mínir menn í HK loka þessum leik þægilega, 2-0 og negla sér svo beint í Brekkuna góðu. Eyjamenn byrja peppaðir fyrstu 20 en BBB slekkur í þeim með skallamarki, Binni lokar svo leiknum í seinni og allir fara glaðir inní kvöldið.

FH 0 - 2 ÍA (19:15 á þriðjudag)
Dátar fimleikafélagsins hafa verið heillum horfnir í síðustu leikjum og ég spái áframhaldandi veseni í Hafnarfirðinum. Skagamenn eru svekktir með ósigurinn gegn meisturunum og koma kolbrjálaðir til leiks. Skagamenn taka þennan leik 2-0 þrátt fyrir að missa mann út af í fyrri hálfleik. Tryggvi kemst í gírinn á ný með tvö lúxusmörk

KR 4 - 0 Grindavík (19:15 á þriðjudag)
Gunni Guðmunds og félagar fá ekki mikið af mörkum á sig. Því miður verður það ekki raunin í þessum leik. Það er gríðarleg stemning í Vesturbænum og þeir taka hana með sér og klára leikinn með yfirburðum. Flóki setur þrennu og Big Bó setur screamer undir lokin.

Breiðablik 2 - 2 KA (18:00 á miðvikudag)
Vörnin hjá blikum mun leka i fjarveru Damirs en gæðin fram á við bjarga stigi. Fjörugur leikur sem fer 2-2. Gísli opnar markareikninginn sinn.

Valur 3 - 1 Fylkir (19:15 á miðvikudag)
Valsmenn eru að finna sitt gamla form og Fylkismenn hafa verið að ströggla með stóru liðin. Það verður fjör á Hlíðarenda yfir Verslunarmannahelgina, 3-1
Patrick með tvö og Haukur Páll með eitt fyrirliðamark. Bankastjórinn skorar hins vegar fyrsta mark leiksins.

Stjarnan 2 - 2 Víkingur R. (19:15 á miðvikudag)
Víkingar hafa verið að spila Gróttubolta í sumar og eru ágætir í því. Hins vegar koma Stjörnumenn gíraðir inn í leikinn og munu setja fyrstu tvö mörkin. Guðmundur Andri mun beita sínum töfrum í seinni hálfleik og búa til 2 mörk fyrir KÁ og Luigi.

Sjá einnig:
Gói Sportrönd (5 réttir)
Jóhann Skúli Jónsson (4 réttir)
Vilhjálmur Freyr Hallsson (4 réttir)
Oliver Sigurjónsson (4 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Hólmbert Aron Friðjónsson (3 réttir)
Lárus Guðmundsson (3 réttir)
Lucas Arnold (3 réttir)
Ingólfur Sigurðsson (2 réttir)
Davíð Smári Helenarson (2 réttir)
Alexandra Jóhannsdóttir (2 réttir)
Böðvar Böðvarsson (1 réttur)
Fanndís Friðriksdóttir (1 réttur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner