Liverpool ætlar að fá þrjá - Chelsea vill Rogers - Ancelotti að taka við Brasilíu
   fim 01. maí 2025 06:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: LifeTrack 
KA í samstarf við LifeTrack
Á myndinni eru Hallgrímur Jónasson þjálfari KA, Ingi Torfi Sverrisson einn af stofnendum LifeTrack og Ívar Örn Árnason fyrirliði KA.
Á myndinni eru Hallgrímur Jónasson þjálfari KA, Ingi Torfi Sverrisson einn af stofnendum LifeTrack og Ívar Örn Árnason fyrirliði KA.
Mynd: LifeTrack
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á dögunum undirrituðu LifeTrack og KA samstarfssamning sem miðar að því að efla frammistöðu og heilsu leikmanna meistaraflokks karla á yfirstandandi tímabili en KA keppir í Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum og Sambandsdeild Evrópu.

Fyrr í vetur höfðu Þór og LifeTrack hafið samstarf sín á milli. LifeTrack er m.a. í samstarfi við Daníel Hafsteinsson, fyrrum leikmann KA, og landsliðskonuna Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Leikmenn og þjálfarar meistaraflokks KA hafa notað LifeTrack appið undanfarna mánuði til þess að auka skilning og næringarlæsi en ekki síst til þess að tryggja að þeir borði nægilega mikið og í takt við mikið æfinga- og keppnisálag.

LifeTrack er íslenskt heilsuapp sem m.a. reiknar út orkuþörf notenda og heldur utan um daglega næringarinntöku. Auk þess er í appinu lögð áhersla á jákvætt hugarfar og hvatningu sem eru lykilþættir í íþróttum.

„Það er ómetanlegt hvað íþróttafólk og heilu íþróttaliðin hafa tekið LifeTrack opnum örmum á þeim stutta tíma sem við höfum verið starfandi. Við hjá LifeTrack erum spennt fyrir samstarfinu við KA og virkilega gaman að fá að styðja við bakið á liði í Bestu deildinni,” segir Ingi Torfi Sverrisson, rekstrarstjóri og einn af stofnendum LifeTrack.

Næring skiptir íþróttafólk máli því hún styður við orku, endurheimt, árangur og almenna heilsu.

„Það er alveg ljóst að næring spilar stóra rullu í frammistöðu og endurheimt leikmanna og við teljum okkur hafa tekið stórt skref í rétta átt með þessu samstarfi. Við þurftum ekki að hugsa okkur mikið um þegar þessi möguleiki kom upp og leikmenn okkar hafa verið duglegir að nýta appið og þá ekki síst ungu leikmennirnir. Það er því miður of algengt að ungt afreksíþróttafólk sé að borða of lítið miðað við álag og mér sýnist LifeTrack vera ansi gott verkfæri hvað það varðar,” segir Hallgrímur Jónasson þjálfari meistaraflokks KA í fótbolta.
Athugasemdir
banner
banner