Man Utd hefur gert tilboð í Mbeumo - Ronaldo með tilboð frá brasilísku félagi - Villa hefur áhuga á Ferran Torres
   mán 19. maí 2025 14:36
Elvar Geir Magnússon
Ver slæmt tímabil með Samfélagsskildinum
Mynd: EPA
Manchester City hefur átt afskaplega erfitt tímabil. Liðið er ekki öruggt með sæti í Meistaradeildinni á síðasta tímabili.

Pep Guardiola, stjóri City, kom með áhugaverð ummæli á fréttamannafundi í morgun og sagði að City væri aðeins eitt af þremur enskum liðum sem gætu spilað í Meistaradeildinni á næsta tímabili sem hefði unnið titil á tímabilinu.

Hann er þar að vitna í það að Manchester City vann leikinn um Samfélagsskjöldinn í ágúst. Þar mætast árlega ríkjandi meistarar og bikarmeistararnir.

„Auðvitað er mikilvægt að komast áfram í Meistaradeildina en fyrir utan Newcastle sem vann deildabikarinn, Liverpool sem vann ensku úrvalsdeildina og Manchester City sem vann Samfélagsskjöldinn hefur ekkert annað af þessum liðum unnið titil á tímabilinu," segir Guardiola en City tapaði fyrir Crystal Palace í bikarúrslitaleiknum um helgina.

„Við lékum mjög vel í úrslitaleiknum en ekki nægilega vel til að vinna hann. Við þurfum fjögur stig úr síðustu tveimur leikjunum til að innsigla Meistaradeildarsæti."


Athugasemdir