Newcastle blandar sér í baráttu við Man Utd og Chelsea um Delap - Man City veitir Liverpool samkeppni um Kerkez
   mið 21. maí 2025 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andriy Shevchenko staddur á Íslandi
Andriy Shevchenko.
Andriy Shevchenko.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úkraínska goðsögnin Andriy Shevchenko er staddur á Íslandi um þessar mundir.

Shevchenko er sérstakur gestur á Norrænu knattspyrnuráðstefnunni sem fram fer í Háskólanum í Reykjavík (HR) dagana 21.-22. maí í samstarfi KSÍ og HR.

Schevchenko var á sínum stórkostlegur sóknarmaður sem raðaði inn mörkum fyrir AC Milan og úkraínska landsliðið. Hann skoraði ekki alveg eins mikið fyrir Chelsea.

Shevchenko var með spurt og svarað í höfuðstöðvum KSÍ í dag en Hjörvar Hafliðason stjórnaði því. Góð aðsókn var á viðburðinn.

Shevchenko starfar í dag sem formaður fótboltasambandsins í Úkraínu.
Athugasemdir
banner
banner