Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. nóvember 2022 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi nýtir sér klásúlu í samningi sínum
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: EPA
Lionel Messi hefur beðið Christophe Galtier, þjálfara Paris Saint-Germain, um leyfi til þess að draga sig úr leikmannahópi Parísarfélagsins eftir næstu helgi.

Messi ætlar að gera það til þess að vera alveg frískur þegar hann mætir til móts við argentínska landsliðið fyrir HM.

HM í Katar verður síðasta heimsmeistaramót Messi og síðasta tækifæri hans til að vinna þessa sögufrægu keppni.

Hann er með sérstaka klásúlu í samningi sínum hjá PSG sem gerir honum kleift að mæta snemma í verkefni með argentínska landsliðinu og setja það í forgang þegar það á við. Hann nýtir sér þá klásúlu núna.

Messi er einn besti fótboltamaður allra tíma og það verður gaman að fylgjast með honum á HM.
Athugasemdir
banner
banner
banner