Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, var ósáttur með leik sinna manna eftir 4-1 tap gegn Vestra á Ísafirði fyrr í kvöld.
Þór er um miðja deild með 20 stig eftir 13 umferðir, sex stigum frá öðru sætinu sem gefur þátttökurétt í Pepsi Max-deildinni á næsta ári.
„Það er hundfúlt að tapa en við vorum bara alveg off í dag og þetta var sanngjörn niðurstaða. Við vorum á eftir í öllu og mjög auðvelt að meiða okkur í dag. Það var klaufaskapur í okkur en ég tek ekkert af Vestramönnum, þeir voru bara grimmari og vildu þetta meira í dag," sagði Palli.
„Heilt yfir var þetta slakur leikur af okkar hálfu og hverjum sem er um að kenna erum við aðeins að stimpla okkur út úr þessari toppbaráttu. Mörk breyta leikjum, við fáum mjög ódýrt mark á okkur í stöðunni 1-1 beint úr aukaspyrnu af löngu færi."
Palli er ekki búinn að gefa toppbaráttuna upp á bátinn en hann er með sterk skilaboð til sinna manna sem hafa níu umferðir til að laga stöðuna.
„Taflan lýgur ekki, við erum í þvílíkum eltingaleik og vorum að þykjast komast inní toppbaráttuna aftur. Það þýðir ekkert að berja sér á brjóst, vera góður í einum leik og gera uppá bak í næsta. Það vantar stöðugleika og það eru því miður alltof margir leikmenn Þórs sem eru ekki nógu stabílir á milli leikja.
„Við tökum alltof lítinn þátt í að stjórna leikjum eins og þessum í dag nema kannski á tíu mínútna kafla í hvorum hálfleik þar sem allt lítur vel út og menn eru komnir í gírinn og jafna. Svo fáum við mark í andlitið og eiginlega brotnum bara, ekki í fyrsta skipti. Þetta er eitthvað sem við verðum að berjast við. Auðvitað erum við ekki að gefast upp en auðvitað lýgur taflan ekki."
Athugasemdir





















