Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   lau 04. september 2021 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rice tilbúinn að gera nýjan samning
Mynd: EPA
Declan Rice hefur verið eftirsóttur að undanförnu en félagsskiptaglugginn er nýlokið og Rice enn á mála hjá West Ham.

Rice var ósáttur við félagið að hafa sett á sig 100 milljón punda verðmiða en Man Utd, Man City, Chelsea og Liverpool eru öll sögð hafa áhuga á honum.

Hann segist geta einbeitt sér að því að klára tímabilið með West Ham en hann er opinn fyrir því að skrifa undir nýjan samning með klásúlu í samningnum um að ef rétt tilboð berist í hann verður West Ham að samþykkja það.

Hann er að spila sjötta tímabilið sitt með West Ham en hann hefur verið algjör lykilmaður síðustu þrjú tímabilin.
Athugasemdir
banner
banner