Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
   lau 05. september 2015 14:18
Ívan Guðjón Baldursson
Kolbeinn: Nudda okkur allan daginn
Icelandair
Markahrókurinn Kolbeinn hefur gert 17 mörk í 29 landsleikjum.
Markahrókurinn Kolbeinn hefur gert 17 mörk í 29 landsleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson var í mjög góðu skapi í viðtali fyrir leik Íslands gegn Kasakstan sem verður spilaður á morgun.

Kolbeinn fór fögrum orðum um landsliðið og allt í kringum það, enda sést það langar leiðir að ánægja leikmanna skín í gegn.

„Nú þurfum við að klára þetta. Vonandi náum við öllum niður á jörðina eftir þetta í Hollandi og ég finn að það er fáránleg tilhlökkun í öllum. Ég veit að menn verða einbeittir á morgun og klára þetta." sagði Kolbeinn.

Umfangið kringum íslenska landsliðið er glæsilegt þar sem menn geta farið í ísbað og eru nuddaðir allan daginn.

„Þið sjáið ekki allt sem er gert fyrir okkur í landsliðinu. Sjúkraþjálfararnir og læknarnir og allt í kringum liðið skiptir miklu máli. Þeir halda okkur saman og eru að nudda okkur allan daginn og eru alltaf klárir.

„Það er mikilvægt í þessu, það er ekki bara við heldur allt í kringum liðið sem er tipp topp og standardinn er orðinn góður í landsliðinu."


Kolbeinn var sendur í lyfjapróf eftir sigurinn á Hollendingum og gat því ekki tekið þátt í fögnuðinum inn í klefa eftir leikinn.

„Ég fékk að heyra það á bekknum að ég þyrfti að fara í lyfjapróf og byrjaði bara strax að drekka vatn 20 mínútum fyrir leikslok. Ég held það hafi tekið einn og hálfan tíma fyrir mig að ná að pissa eitthvað.

„Ég og Aron höfum ekkert fagnað eftir þennan leik þannig að vonandi náum við að fagna á morgun."

Athugasemdir
banner
banner