Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   þri 06. júlí 2021 10:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cecilía og Berglind Rós í liði vikunnar
Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvær íslenskar landsliðskonur eru í liði vikunnar í Svíþjóð hjá fjölmiðlinum Aftonbladet.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti sannkallaðan stórleik er Örebro mætti toppliði Rosengård.

Leikurinn endaði með óvæntu markalausu jafntefli og var Cecilía stór ástæða fyrir því að Örebro náði í stig.

Cecilía, sem er aðeins 17 ára, er á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku eftir að hafa gengið í raðir Örebro frá Fylki fyrir þessa leiktíð.

Berglind Rós Ágústsdóttir, liðsfélagi hennar í Örebro og landsliðinu, kemst einnig í lið vikunnar. Hún spilaði sem einn af þremur miðvörðum í leiknum og stóð sig einstaklega vel. Hún var nánast alltaf réttur maður á réttum stað í leiknum.

Með því að smella hér má sjá lið vikunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner