„Mér líður ótrúlega vel. Eins og á hverju ári undanfarin ár.“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir 1-0 tap gegn Breiðablik á heimavelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 Breiðablik
Leikurinn var kannski leikur tveggja hálfleika þar sem Valskonur byrja mun sterkari en missa dampinn í seinni hálfleik. Hvað gerðist í seinni hálfleik hjá Val?
„Mér fannst við spila frábæran fyrri hálfleik. Við fáum mark á okkur snemma í seinni hálfleiknum og við reyndum að jafna þetta en þetta var bara fínn leikur.“
„Ég er rosalega stoltur af liðinu mínu. Þær hafa staðið sig frábærlega þessar stelpur í sumar og í vetur. Það er ótrúlegt að við höfum verið með 11 stiga forystu þegar það voru fjórir eða fimm leikir eftir. Það var ótrúlegt miðað við vesenið á okkur á þessu ári.“
Næsta verkefni Vals er að takast á við SKN St. Poelten í Meistaradeildinni en hvernig lýst Pétri á framhaldið?
„Við komum vel inn í þessa leiki. Við vonumst til þess að spila góðan leik hérna á þriðjudaginn og fá mikið af fólki frá Val að styðja okkur og við ætlum að reyna að gera eins vel og hægt er.“
Pétur var á tíma í sumar orðaður við starfið hjá Breiðablik eftir að Ásmundur fór frá Blikum. Hann var aldrei formlega orðaður við starfið en þetta var svokölluð leigubílasaga.
„Veistu hvaða leigubílstjóri það var?“ sagði þá Pétur í gríni.
Pétur sagði það aldrei möguleiki að taka við Breiðablik.
„Nei það var ekkert til í því.“
Þetta er fjórði Íslandsmeistaratitill Péturs með Val en honum líður vel í Val.
„Það er gott að vera í Val. Umgjörðin í kringum okkur er frábær og leikmennirnir eru geggjaðir þannig það þýðir ekkert að fara annað.“
Pétur var einnig spurður hvort hanni sé eitthvað búinn að hugsa út í næsta tímabil eða hvort hann sé með hausinn á Meistaradeildinni.
„Ég byrjaði að hugsa um næsta tímabil fyrir þrem vikum síðan.“






















