Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. janúar 2023 13:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ward-Prowse skoraði úr fyrirgjöf
Mynd: EPA

James Ward-Prowse er þekktur fyrir að skora úr aukaspyrnum en hann gerði slíkt í fyrri hálfleik í leik Southampton gegn Crystal Palace.


Odsonne Edouard kom Palace yfir en Ward-Prowse jafnaði metin. Palace fékk aukaspyrnu langt utan af velli og það er ljóst að hann ætlaði að reyna fyrirgjöf en boltinn fór yfir allan pakkann og skoppaði í netið.

Eins og fyrr segir er hann þekktur fyrir að skora mörk beint úr aukaspyrnum en hann hefur skorað 15 slík mörk í úrvalsdeildinni og er aðeins þremur mörkum frá því að jafna David Beckham sem er með flest mörk.

Markið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner