Oliver Sigurjónsson, fyrirliði íslenska U21 landsliðsins, var svekktur eftir 1-1 jafntefli gegn Norður-Írum á Fylkisvelli í undankeppni EM 2017 í dag.
Gestirnir komust yfir snemma leiks en Íslandi tókst að jafna metin rétt fyrir leikhlé. Ekkert var skorað í seinni hálfleik.
Gestirnir komust yfir snemma leiks en Íslandi tókst að jafna metin rétt fyrir leikhlé. Ekkert var skorað í seinni hálfleik.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Norður-Írland U21
„Þetta eru tvö töpuð stig og það er ekki gott að fá eitt stig á móti Norður-Írum á heimavelli miðað við byrjunina. Við tökum eitt stig með okkur, það er bara þannig," sagði Oliver við Fótbolta.net. Hann vildi ekki kenna vondum aðstæðum um.
„Þetta var alveg jafn vont veður fyrir bæði lið. Vissulega kom það niður á gæðum fótboltans og við gátum kannski ekki alveg spilað okkar bolta, en það er engin afsökun."
„Við kíkjum fram á veginn, við ætlum að komast áfram í þessum riðli og þá þurfum við að vinna fótboltaleiki. Við erum mjög jákvæðir."
Athugasemdir






















