Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fös 10. júní 2022 10:30
Elvar Geir Magnússon
Gavi og Barcelona nálægt samningi - Fundur í dag
Gavi er sautján ára.
Gavi er sautján ára.
Mynd: EPA
Ivan de la Pena, umboðsmaður Gavi, mun funda með stjórn Barcelona í dag.

Viðræður um nýjan samning eru komnar á lokastig og fimm ára samningur á borðinu.

Núgildandi riftunarákvæði í samningi hans upp á 50 milljónir evra verður fjarlægt og í staðinn sett ákvæði upp á milljarð evra.

Gavi er einn besti ungi leikmaður heims en þessi sautján ára leikmaður skoraði sitt fyrsta mark fyrir spænska landsliðið, gegn Tékklandi.

Gavi lék 34 leiki í La Liga á nýliðnu tímabili, skoraði tvö mörk og átti sex stoðsendingar.
Athugasemdir
banner
banner