Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
Siggi Höskulds: Svekkjandi að ná ekki að halda þetta lengur út eftir að skora
„Sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér"
Gunnar Már: Sérð það á liðinu að sjálfstraustið er ekkert
Gústi Gylfa eftir fyrsta Breiðholtsslaginn: Ekki slegnir út af laginu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
Árni Freyr: Tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við
Halli Hróðmars: Getum náð í úrslit líka þó að það dynji aðeins á okkur
„Ákváðum þetta í raun bara klukkan hálf ellefu í morgun"
Agla María: Frammistaðan hefur alveg verið betri
Nik Chamberlain: Enginn vafi á því að við myndum vinna þennan leik
Pétur Rögnvalds: Óhress með sjálfan mig
Hulda Ösp: Ég var bara á réttum stað og á réttum tíma
Rakel Grétars: Það gekk ekkert upp
Guðni um endatakmarkið: Rosalegt hungur að gera það í ár
Jói um gula spjaldið: Greinilega mikið að gera hjá dómaranefndinni
Óli Kri: Sólin kemur upp á morgun og það eru fleiri verkefni framundan
banner
   sun 11. júní 2017 21:56
Mist Rúnarsdóttir
Birkir Bjarna: Þetta var nú ekki góður skalli
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason landsliðsmaður var að vonum mjög sáttur eftir magnaðan 1-0 sigur á Króötum í undankeppni Heimsmeistaramótsins. Birki fannst sigurinn sérlega sætur þar sem margir öflugir leikmenn hafa ekki verið að spila mikið vegna meiðsla að undanförnu.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Króatía

„Það eru mjög margir sem hafa verið í meiðslum og ekki spilað mikið undanfarið þannig að ná að vinna á móti þessu liði er mjög sterkt. Þetta var hrikalega sætt.“

Birkir segist alltaf hafa haft trú á að fá sigurmark í leikinn en hélt sjálfur að boltinn væri á leiðinni yfir þegar Hörður Magnús skoraði.

„Ég held að allir hafi haldið að hann væri að fara yfir. Þetta var nú ekki góður skalli en frábært að hann fór inn og alveg hrikalega mikilvægt.“

Birkir er að koma til baka eftir meiðsli en gat spilað í rúmar 80 mínútur í kvöld.

„Ég er ekkert búinn að spila í þrjá mánuði. Það er svolítið mikið. Ég er búinn að vera að æfa gríðarlega vel. Bæði með landsliðinu og sjálfur og er kominn í mjög gott form. Það sem vantar helst er leikformið. Mér leið mjög vel en var orðinn svolítið þreyttur í lokin,“ sagði Birkir sem býst við erfiðum leik gegn Finnum í september.

„Það er annar erfiður leikur. Þetta er mjög gott lið, við sáum það hér heima. Það verður hrikalega mikilvægur leikur fyrir okkur ef við ætlum að gera eitthvað í þessum riðli.“

Nánar er rætt við Birki í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner