Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
Fyrsta tap ÍR: „Helvíti gróft ef að eitt tap í tólf leikjum sitji þungt í mönnum"
Hemmi fékk góða afmælisgjöf: „Hún gat ekki verið betri"
Reynir Freyr: Gefur okkur mikið að fá Jón Daða
Gunnar Guðmunds: Við erum búnir að fá okkur alltof mörg mörk úr föstum leikatriðum
Árni Freyr: Andleysi leikmanna í hámarki
Jakob Gunnar spilaði sinn síðasta leik fyrir Þróttara: Vildi spila meira
Ingi Rafn: Fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur
Mark tekið af Keflavík vegna rangstöðu: „Bara óskiljanlegt"
Haraldur Hróðmars: Lífsnauðsynlegur sigur
Venni: Það gaf okkur blóð á tennurnar
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
   fös 11. júlí 2025 22:28
Haraldur Örn Haraldsson
Mark tekið af Keflavík vegna rangstöðu: „Bara óskiljanlegt"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við byrjum leikinn ekki nógu vel, erum bara á hælunum," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir 3-2 tap við Þrótt.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  2 Keflavík

„Við lendum 1-0 undir, en þá svona finnst mér við fyrst byrja leikinn. Við komum til baka og 1-1 staða í hálfleik. Svo er þetta bara hörku leikur í seinni hálfleik, bara mjög jafn leikur sem endar 3-2 fyrir þeim," sagði Haraldur.

Leikurinn var mjög jafn, og sanngjörn úrslit hefðu hugsanlega verið jafntefli. Þróttarar nýttu hins vegar færin sín og unnu leikinn.

„Það er alltaf fúlt að tapa, og það er ekkert spurt um hvað er sanngjarnt í þessu eða ekki. Í stöðunni 1-1 þá skorum við mark, sem af okkar mati er bara löglegt, en það er dæmd rangstaða, bara óskiljanlegt. Mörk breyta leikjum, svo lendum við 2-1 undir, svo 3-1. Við komum svo til baka í 3-2, en eins og þú segir þá var þetta 50-50 leikur og hefði getað farið hvernig sem er, en niðurstaðan er tap," sagði Haraldur.

Sindri Kristinn Ólafsson lendir í tveimur atvikum í seinni hálfleik. Í því fyrra fær hann aukaspyrnu þrátt fyrir mótmæli Þróttara en í því seinna fékk hann rautt.

„Það er klárlega brotið á honum, og réttilega dæmd aukaspyrna fyrir okkur. Ég sá ekkert hvað gerðist eftir það, það hefur varla verið mikið fyrst það var ekkert gert í því. Seinna atvikið var bara mistök hjá Sindra. Hann veður út í eitthvað sem hann á kannski ekki að gera, er óákveðinn, fær á sig hendi og réttilega dæmt rautt spjald," sagði Haraldur.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner