Pickford framlengir við Everton - Barcelona hyggst kaupa Rashford - Ekki framlengt við Lewandowski
   mán 13. október 2025 10:00
Elvar Geir Magnússon
Watkins lenti í árekstri við stöngina og verður ekki með gegn Lettum
Watkins spilar ekki gegn Lettlandi.
Watkins spilar ekki gegn Lettlandi.
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Ollie Watkins verður ekki með enska landsliðinu í útileiknum gegn Lettlandi annað kvöld en hann meiddist í 3-0 sigri á Wales í vináttulandsleik á fimmtudag.

Watkins skoraði annað mark Englands á Wembley en lenti í árekstri við markstöngina þegar hann klúðraði færi seint í fyrri hálfleik og var tekinn agf velli í leikhléi.

Anthony Gordon, vængmaður Newcastle, tók stöðu fremsta sóknarmanns eftir að Watkins fór af velli og gæti farið í sama hlutverk í Riga.

Fyrirliðinn Harry Kane missti af leiknum gegn Wales en Thomas Tuchel landsliðsþjálfari sagði eftir leikinn að Kane yrði að öllum líkindum til taks gegn Lettlandi.

England getur með sigri tryggt sér sæti á HM 2026 þegar tvær umferðir verða eftir.


Athugasemdir
banner
banner
banner