Ekitike áþjáður í að fara til Liverpool og hefur farið fram á sölu - Wissa vill frekar fara til Tottenham en Newcastle
   sun 15. janúar 2023 17:58
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Reguilon sá rautt eftir að hafa komið inná sem varamaður
Atlético Madríd gerði 1-1 jafntefli við Almería í La Liga á Spáni í dag en á meðan vann Espanyol 2-1 sigur á Getafe.

Argentínumaðurinn Angel Correa kom Atlético í forystu á 18. mínútu áður en El Bilal Toure jafnaði tæpum tuttugu mínútum síðar.

Sergio Reguilon er að stíga til baka úr meiðslum og kom inná sem varamaður þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum en honum tókst að næla sér í tvö gul spjöld og þar með rautt áður en leikurinn var úti.

Atlético er í 4. sæti með 28 stig.

Espanyol lagði þá Getafe að velli, 2-1. Joselu skoraði fyrsta markið á 6. mínútu. Hann varð þar með fyrsti leikmaður félagsins í 43 ár til að skora 10 mörk í La Liga í fyrstu sautján leikjum tímabilsins.

Adam var ekki lengi í paradís því Enes Unal jafnaði tæpri mínútu síðar. Espanyol gat tekið gleði sína á ný þegar hálftími var eftir er Javi Puado gerði sigurmarkið. Espanyol er í 14. sæti með 17 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Almeria 1 - 1 Atletico Madrid
0-1 Angel Correa ('18 )
1-1 El Bilal Toure ('37 )
Rautt spjald: Sergio Reguilon, Atletico Madrid ('89)

Getafe 1 - 2 Espanyol
0-1 Joselu ('6 )
1-1 Enes Unal ('7 )
1-2 Javi Puado ('62 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 28 4 6 102 39 +63 88
2 Real Madrid 38 26 6 6 78 38 +40 84
3 Atletico Madrid 38 22 10 6 68 30 +38 76
4 Athletic 38 19 13 6 54 29 +25 70
5 Villarreal 38 20 10 8 71 51 +20 70
6 Betis 38 16 12 10 57 50 +7 60
7 Celta 38 16 7 15 59 57 +2 55
8 Osasuna 38 12 16 10 48 52 -4 52
9 Vallecano 38 13 13 12 41 45 -4 52
10 Mallorca 38 13 9 16 35 44 -9 48
11 Valencia 38 11 13 14 44 54 -10 46
12 Real Sociedad 38 13 7 18 35 46 -11 46
13 Alaves 38 10 12 16 38 48 -10 42
14 Getafe 38 11 9 18 34 39 -5 42
15 Espanyol 38 11 9 18 40 51 -11 42
16 Sevilla 38 10 11 17 42 55 -13 41
17 Girona 38 11 8 19 44 60 -16 41
18 Leganes 38 9 13 16 39 56 -17 40
19 Las Palmas 38 8 8 22 40 61 -21 32
20 Valladolid 38 4 4 30 26 90 -64 16
Athugasemdir
banner