Risatilboði Chelsea hafnað - Tekur Nuno við West Ham? - Tveir á blaði United - Ungur miðvörður til Arsenal?
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
Bjarni Guðjón: Það er gaman að vera Þórsari í dag
„Fullyrði að ekki nokkur leikmaður hefur bætt sig jafn mikið eftir þrítugt"
Rúnar: Þá tekur þú ekki besta leikmanninn í liðinu útaf
Hallgrímur Mar: Getum engum öðrum en sjálfum okkur um kennt
Heimir: Þeir voru að svæfa leikinn og komust upp með það
Jón Daði: Þarf að komast í burtu frá fótbolta og hreinsa hugan
Bjarni Jó: Það kannski einkennir lið sem er að falla
Ingimar Arnar skoraði sigurmarkið: Ég man ekki einu sinni eftir þessu
Jóhann Birnir: Svekkelsi
Sigfús Fannar: Þetta mark var fyrir hana
Siggi Höskulds: Fannst við eiga skilið að vinna þessa deild
Addi Grétars: Ekki mikil fótboltaleg gæði
Aron Ingi: Það var bara eitt markmið og það var að fara beint upp
   þri 16. maí 2017 19:51
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ian Jeffs: Get ekki beðið um meira á útivelli
Kvenaboltinn
Ian Jeffs var ánægður með 4-0 sigur ÍBV
Ian Jeffs var ánægður með 4-0 sigur ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs, þjálfari ÍBV var mjög ánægður með stórsigur á Grindavík í dag, 4-0.

„Við skorum fjögur mörk og höldum hreinu. Ég get ekki beðið um meira á útivelli," sagði Jeffs.

ÍBV byrjaði af miklum krafti og skoraði strax á annarri mínútu. Jeffs var ekki nógu ánægður með viðbrögð leikmanna sinna eftir markið.

„Mér fannst við skora kannski of snemma. Eftir að við skoruðum fyrsta markið fórum við svolítið út úr stöðum og vildum skora í hverri einustu sókn. Við vorum svolítið óþolinmóðar og misstum skipulagið. Ég var ekki alveg nógu ánægður með það."

Í stöðunni 1-0 fékk Grindavík dauðafæri til þess að jafna leikinn en brást bogalistinn. Strax í næstu sókn skoraði ÍBV og komst í 2-0 og var það ákveðinn vendipunktur í leiknum.

„Það er mjög erfitt að fá svona högg í leikjum. Ég er búinn að lenda í þessu hinum megin. Það gerðist nákvæmlega sama í síðustu umferð á móti Stjörnunni. Við fengum dauðafæri og klúðruðum. Þær fóru upp hinn endann og fengu víti. Svona er fótbolti stundum en heilt yfir var þetta sanngjörn úrslit."

Allar stelpurnar sem komu inn á fyrir ÍBV í dag eru fæddar árið 2002. Tvær af þeim voru að spila sinn fyrsta leik fyrir ÍBV.

„Það komu þrjár inn á fæddar 2002 sem er alveg magnað. Ég er mjög ánægður með þeirra innkomu og þær læra mjög mikið af þessu."
Athugasemdir
banner
banner