Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   fös 21. október 2022 14:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsliðshópurinn gegn Sádí-Arabíu - Fjórtán úr Bestu deildinni
Danijel Dejan Djuric er í hópnum..
Danijel Dejan Djuric er í hópnum..
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Ingi Gunnarsson og Aron Einar Gunnarsson.
Hörður Ingi Gunnarsson og Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að tilkynna landsliðshóp sem tekur þátt í umdeildu verkefni gegn Sádí-Arabíu í næsta mánuði. Leikið verður í Dúbaí.

Unnið er að staðfestingu annars leiks, sem yrði hluti af sama verkefni, og vonast KSÍ til að geta staðfest þann leik strax eftir helgi.

„Leikirnir í fyrra verkefninu eru ekki innan FIFA-glugga og þess vegna veljum við 23 manna hóp, með fimm leikmenn til vara þar sem það er óvissa með þátttöku nokkurra leikmanna sem gætu verið að leika með sínum félagsliðum í umspilsleikjum. Þetta á eftir að skýrast," segir Arnar Þór Viðarsson.

„Sú staða gæti komið upp að einhverjir þeirra leikmanna sem eru á varalistanum yrðu kallaðir inn í 23 manna hópinn og við erum að tilkynna hópinn svona snemma að þessu sinni til að leikmenn sem eru að ljúka keppnistímabilum með sínum félagsliðum geti gert viðeigandi ráðstafanir. Vonandi náum við að klára að staðfesta annan leik fyrr þennan hóp og það skýrist væntanlega strax eftir helgi."

Hópurinn:
Frederik August Albrecht Schram (M) - Valur - 5 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson (M) - IF Elfsborg - 2 leikir
Sindri Kristinn Ólafsson (M) - Keflavík
Viktor Örn Margeirsson - Breiðablik
Róbert Orri Þorkelsson - CF Montreal
Damir Muminovic - Breiðablik - 2 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - D.C. United - 31 leikur, 1 mark
Rúnar Þór Sigurgeirsson - Keflavík - 1 leikur
Logi Tómasson - Víkingur R.
Hörður Ingi Gunnarsson - Sogndal IL - 1 leikur
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik - 5 leikir
Ísak Snær Þorvaldsson - Breiðablik
Dagur Dan Þórhallsson - Breiðablik
Viktor Karl Einarsson - Breiðablik - 2 leikir
Daníel Hafsteinsson - KA
Viktor Örlygur Andrason - Víkingur R. - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi - 99 leikir, 2 mörk
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia FC
Valdimar Þór Ingimundarson - Sogndal IL - 1 leikur
Jónatan Ingi Jónsson - Sogndal IL
Jason Daði Svanþórsson - Breiðablik - 1 leikur
Danijel Dejan Djuric - Víkingur R.
Óttar Magnús Karlsson - Oakland Roots - 9 leikir, 2 mörk

Til vara:
Ólafur Kristófer Helgason (M) - Fylkir
Ívar Örn Árnason - KA
Þorri Már Þórisson - KA
Ari Sigurpálsson - Víkingur R.
Adam Ægir Pálsson - Víkingur R.

Seinna nóvember-verkefni íslenska liðsins verður svo þátttaka í Baltic Cup þar sem leika Eystrasaltslöndin Eistland, Lettland og Litháen, auk gestaþjóðarinnar Íslands.

Þar mætir Ísland Litháen í undanúrslitum og mætir svo annað hvort Eistlandi eða Lettlandi í úrslitaleik um sigur í mótinu eða í leik um þriðja sætið.

Leikdagarnir eru 16. og 19. nóvember og verður hópurinn fyrir það verkefni tilkynntur síðar.

Sjá einnig:
Hverjir fara til Sádí-Arabíu? - Allavega 23 á lista
Athugasemdir
banner
banner