Nottingham Forest sankaði að sér urmul leikmanna síðasta sumar enda ætlaði félagið að gera sér góða hluti eftir langþráða endurkomu í ensku úrvalsdeildina.
Einn þeirra er Loïc Badé, 22 ára varnarmaður Rennes og franska U21 landsliðsins sem kom til Forest á lánssamningi.
Bade tókst ekki að hrífa þjálfarateymið hjá Forest og spilaði ekki eina mínútu með félaginu í haust.
Hann hefur fengið samþykkt að binda enda á lánssamninginn við Forest og mun þess í stað halda til Sevilla á Spáni.
Bade yrði varamaður hjá Sevilla en hann getur í það minnsta ekki fengið minni spiltíma á Spáni heldur en hann fékk á Englandi.
Athugasemdir