Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   fös 24. febrúar 2023 19:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Fulham og Wolves: Mitrovic ekki klár en Jimenez byrjar
Mynd: Getty Images

Aleksandar Mitrovic er ekki klár í slaginn í kvöld þegar Fulham fær Wolves í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni.


Hann var ekki með vegna meiðsla í 1-0 sigri liðsins gegn Brighton í síðustu umerð en Manor Solomon sem skoraði markið eftir að hafa komið inn á sem varamaður er áfram á bekknum í kvöld.

Raul Jimenez hefur þurft að sætta sig við að byrja á bekknum í síðustu þremur leikjum en hann fær sæti í byrjunarliðinu í kvöld.

Það eru tvær breytingar á Fulham liðinu sem tapaði gegn Bournemouth í síðustu umferð. Adama Traore og Joao Moutinho fá sér sæti á bekknum og ásamt Jimenez kemur Mario Lemina í liðið eftir að hafa tekið út eins leiks bann.

Fulham: Leno, Tete, Diop, Ream, Robinson, Reed, Palhinha, Decordova-Reid, Pereira, Willian, Vinicius
(Varamenn: Rodak, Kurzawa, Adarabioyo, Duffy, Solomon, Soares, James, Lukic, Wilson)

Wolves: Sa, Semedo, Dawson, Kilman, Bueno, Neves, Nunes, Lemina, Sarabia, Cunha, Jimenez
(Varamenn: Bentley, Ait-Nouri, Collins, Podence, Jonny, Diego Costa, Joao Gomes, Traore, Moutinho)


Athugasemdir
banner
banner