Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. febrúar 2023 21:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enzo við stuðningsmenn Chelsea: Treystið okkur
Mynd: Getty Images

Enzo Fernandez leikmaður Chelsea biðlar til stuðningsmanna liðsins að hafa trú á liðinu en það hefur gengið afar illa á þessari leiktíð.


Enzo er einn af átta leikmönnum sem Chelsea fékk til liðsins í janúarglugganum. Liðið er í 10. sæti deildarinnar en Enzo sendi stuðningsmönnum liðsins skilaboð.

„Mín skilaboð til stuðningsmanna væru að treysta okkur. Treystið leikmönnunum, treystið þjálfarateyminu og treystið stjóranum því við erum allir að róa í sömu átt. Það eru margir nýir leikmenn hérna," sagði Enzo.

„Ég hvet þá til að sýna þolinmæði, ekki gleyma því að við vitum hvað við stöndum yrir. Við ætlum að reyna vinna leiki og byrjum á sunnudaginn. Þá getum við snúið hlutunum við."

Hann vonast til að félagið festi kaup á Joao Felix sem er á láni frá Atletico Madrid.

„Vona að Chelsea geti gert allt til að halda honum, það væri frábært," sagði Enzo um Felix.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner