Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 24. febrúar 2023 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: ÍR fór illa með Ægi
Bergvin Fannar Helgason
Bergvin Fannar Helgason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir leikir fóru fram í B-deild Lengjubikarsins í kvöld en leikið var í riðli 1, 2 og 3.


Í riðli eitt vann Ýmir sigur á KV en þetta var annar leikur beggja liða á mótinu. KV steinlá gegn Kára 7-0 í fyrsta leik á meðan Ýmir vann Víking Ó 4-2.

Leikur dagsins endaði með 3-0 sigri Ýmis þar sem Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði tvö mörk.

Tvö lið sem leituðust eftir sínum fyrsta sigri mættust í riðli 2 en það vöru Hvíti Riddarinn og Víðir. Hvíti Riddarinn tapaði 6-0 gegn Þrótti Vogum í fyrstu umferð á meðan Víðir tapaði 4-1 gegn Haukum.

Víðir var 2-0 yfir í hálfleik í kvöld en Hvíti Riddarinn minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik. Víðir gerði svo út um leikinn með tveimur mörkum í lokin.

Í riðli 3 valtaði ÍR yfir Ægi. Liðið var með 4-0 forystu í hálfleik en Bergvin Fannar Helgason skoraði þrennu, leiknum lauk með 6-1 sigri ÍR.

KV 0 - 3 Ýmir
0-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('15 )
0-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('29 )
0-3 Ásgeir Lúðvíksson ('42 )

Kári 4 - 1 ÍH
1-0 Björn Darri Ásmundsson ('8 )
2-0 Fylkir Jóhannsson ('11 )
2-1 Kristján Ólafsson ('39 )
3-1 Axel Freyr Ívarsson ('50 )
4-1 Gabriel Þór Þórðarson ('70 )

Hvíti riddarinn 1 - 4 Víðir
0-1 Atli Freyr Ottesen Pálsson ('8 )
0-2 Jón Gunnar Sæmundsson ('10 )
1-2 Eiður Andri Thorarensen ('52 )
1-3 Cristovao A. F. Da S. Martins ('79 )
1-4 Jón Gunnar Sæmundsson ('90 )

ÍR 6 - 1 Ægir
1-0 Bragi Karl Bjarkason ('17 )
2-0 Bergvin Fannar Helgason ('31 )
3-0 Bergvin Fannar Helgason ('34 )
4-0 Bergvin Fannar Helgason ('39 )
5-0 Aron Fannar Hreinsson ('41 )
5-1 Bjarki Rúnar Jónínuson ('57 )
6-1 Aron Fannar Hreinsson ('65 )


Athugasemdir
banner
banner
banner