Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 24. febrúar 2023 15:15
Elvar Geir Magnússon
Mane í hóp í toppslagnum
Mynd: EPA
Stórstjarnan Sadio Mane, framherji Bayern München, verður í leikmannahópi Bayern München sem mætir Union Berlin í toppslag þýsku deildarinnar á sunnudaginn.

Mane meiddist rétt fyrir HM og ekki spilað síðustu mánuði. Hann gæti þó komið við sögu um helgina.

„Sadio verður í hópnum. Þetta er ekki tímapunktur fyrir hann til að byrja. Hann hefur tekið tvær fullar æfingar með liðinu. Hann verður í hópnum og verður til taks og það er gleðiefni," segir Julian Nagelsmann, stjóri Bayern.

Bayern er í toppsætinu á markatölu, liðið er með 43 stig líkt og Borussia Dortmund og Union. Bæjarar töpuðu gegn Borussia Mönchengladbach í síðustu viku og hafa aðeins unnið tvo af sex deildarleikjum á þessu ári.

„Union er mjög heilsteypt lið og var að slá Ajax út úr Evrópudeildinni. Þeir spila upp á að særa þig úr skyndisóknum og þetta verður erfiður leikur," segir Nagelsmann.

Leikur Bayern München og Union Berlín verður klukkan 16:30 á sunnudaginn.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner
banner