Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. febrúar 2023 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fati enn og aftur á meiðslalistann
Mynd: EPA

Ansu Fati hefur verið ansi óheppinn með meiðsli á sínum ferli en þessi tvítugi Spánverji er enn eina ferðina kominn á meiðslalistann.


Fati er leikmaður Barcelona en hann á langa og erfiða meiðslasögu að baki. Hann var frá í tæpt ár frá 2020-2021 og missti af 30 leikjum á síðasta ári vegna meiðsla.

Barcelona greindi frá því í gær að hann hafi meiðst á hné á æfingu og mun fara í frekari skoðun.

Hann kom inn á sem varamaður á 75. mínútu í tapi Barcelona gegn Manchester United í vikunni.


Athugasemdir
banner
banner