Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. febrúar 2023 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjölskylda Potter hefur fengið morðhótanir
Mynd: EPA

Graham Potter hefur fengið mikla gagnrýni fyrir störf sín sem stjóri Chelsea en einhverjir hafa gengið lengra en aðrir.


Liðið er alls ekki að standast kröfur stuðningsmanna en Potter greindi frá því á fréttamannafundi fyrir leiki helgarinnar að hann og fjölskyldan hans hafi fengið morðhótanir.

„Ég hef fengið mikinn stuðning en einnig fengið ekki svo indæla tölvupósta. Í þeim stendur að ég og börnin mín eigum að deyja. Augljóslega er ekki notalegt að fá svoleiðis skilaboð," sagði Potter.

„Þú verður að taka stöðunni eins og hún er, taka gagnrýninni, en ekki láta draga þig inn í hluti sem er rangir. Reyndu að hafa yfirsýn en um leið viðurkenna gagnrýnina. Svoleiðis á það að vera."


Athugasemdir
banner
banner