Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. febrúar 2023 12:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Versta undirbúningstímabil í manna minnum
Mynd: EPA

Graham Potter stjóri Chelsea er undir mikilli pressu en það er þó talið að hann fái tækifæri að fara með liðið í gegnum undirbúningstímabil.


Undirbúningstímabilið fyrir yfirstandandi tímabil barst í tal á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Tottenham á morgun en það var ekki gott.

„Ég talaði við nokkra reynslumikla leikmenn, þeir sögðu að þetta hafi verið versta undirbúningstímabilið á þeirra ferli. Skipulagslega séð fór ferðin ekki eins vel og þeir vildu. Ég var ekki þarna svo ég get ekki sagt til um það," sagði Potter.

Chelsea tapaði gegn botnliði Southampton um síðustu helgi.

„Við héldum að við hefðum náð framförum en fyrri hálfleikurinn var undir pari. Ef þú tapar heima gegn Southampton sem er á botninum býstu við því að stuðningsmenn hafi efasemdir. Úrslitin hafa ekki verið góð, 1-0 tap gegn Southampton er ekki nógug ott, þeir hafa rétt á því að vera reiðir," sagði Potter.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner