Rodrygo orðaður við Arsenal - Wirtz velur milli Bayern og Liverpool - Barcelona vill Díaz
Jón Þór: Bara ein leið út úr þessu
Nýtt sjónarhorn sýnir að Arnar gerði rétt með því að dæma mark Vals ólöglegt
Heimir Guðjóns: Góð liðsheild og menn voru tilbúnir í þetta
Sölvi: Okkar besti fyrri hálfleikur í sumar
Jökull: Hrikalega ánægður með þennan hóp
Ásgeir Helgi: Helvíti erfiður að eiga við og ég er bara mjög ánægður með mig
Kjartan Kári: Þurftum bara að jafna þá í baráttunni
Túfa: Mjög svekkjandi og ekki í fyrsta skipti í sumar
Dóri Árna um afmælisbarnið Ásgeir Helga: Gjörsamlega frábær
Stokke: Mikill léttir að skora fyrsta markið fyrir félagið
Halldór Snær: Illa lélegt hjá okkur öllum
Maggi: Enginn svikinn að mæta hérna í kvöld
Óskar Hrafn: Þetta var tapleikur, það var enginn að kýla mig
Venni í áfalli eftir leikinn: Þetta var ótrúlegur leikur í raun og veru
Haraldur Árni: Mér líður frábærlega í Grindavík
Siggi Höskulds: Vorum bakaðir í fyrri hálfleik
Haraldur Freyr: Það fór aðeins um mig
Haddi: Engin kergja þótt fjölmiðlar reyni að ljúga upp á okkur
„Skelfilegt en lofum því að þetta gerist ekki aftur"
Láki: Veit ekki hvaða lið myndi leysa það að missa svona fallbyssur út af
   fim 25. maí 2023 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haddi: Auðvelt í hópíþróttum að fara benda á aðra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svekktur og við töpum sanngjarnt," sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir tap liðsins gegn Víkingum á heimavelli í kvöld.

„Við byrjum mjög vel en annan leikinn í röð gefum við mark, það er erfitt að annan leikinn í röð gefum við liðum forystu en það breytir því ekki að þú þarft ekki að tapa 4-0."


Lestu um leikinn: KA 0 -  4 Víkingur R.

Hallgrímur var ósáttur með leik liðsins í heild.

„Við erum að gefa mark annan leikinn í röð, það er bara alltof dýrt. Línurnar þurfa að vinna betur saman, vinna með manninum í kringum þig, við þurfum að gera það betur því pressan er ekki nógu góð hjá okkur."

„Við erum að komast í margar fínar stöður en náum ekki að klára það með marki, náum ekki nógu mörgum skotum miðað við þær stöður sem við komumst í," sagði Hallgrímur.

KA menn ætluðu sér stærri hluti á þessari leiktíð og Hallgrímur biðlar til leikmanna að standa saman.

„Þá er oft auðvelt í hópíþróttum að fara benda á aðra og kenna öðrum um, ég fór yfir það í klefanum áðan að það er ekki að fara gerast, við erum að fara gera þetta saman, líta í eigin barm og gera betur," sagði Hallgrímur.


Athugasemdir
banner
banner