Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 27. júní 2022 18:20
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Kórdrengja og Aftureldingar: Siggi Bond á bekknum
Ásgeir Frank Ásgeirsson, leikmaður Aftureldingar, mætir sínum fyrrum félögum.
Ásgeir Frank Ásgeirsson, leikmaður Aftureldingar, mætir sínum fyrrum félögum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er Lengjudeildarslagur í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins sem hefst klukkan 19:15 í Safamýri. Kórdrengir eru í 8. sæti Lengjudeildarinnar en Afturelding er með stigi minna og er sæti neðar.

Kjartan Leifur Sigurðsson textalýsir leiknum en hann ætti að vera jafn og spennandi. Ekki láta ykkur bregða þó leikurinn fari alla leið í vítakeppni.

Lestu um leikinn: Kórdrengir 2 -  1 Afturelding

Bikarleikir kvöldsins:
19:15 Kórdrengir - Afturelding
19:45 ÍA - Breiðablik

Kórdrengir töpuðu 3-1 fyrir HK í síðustu umferð Lengjudeildarinnar. Davíð Smári þjálfari Kórdrengja gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu frá þeim leik. Inn koma Óskar Sigþórsson, Marinó Hilmar Ásgeirsson, Daníel Gylfason, Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og Guðmann Þórisson. Út úr liðinu fara Daði Freyr Arnarsson, Loic Ondo, Kristófer Reyes, Kristján Atli Marteinsson og Sverrir Páll Hjaltested,

Afturelding vann 4-1 sigur gegn Þór í síðasta leik sínum. Magnús Már Einarsson þjálfari Mosfellinga gerir eina breytingu frá þeim leik. Elmar Cogic kemur inn í byrjunarliðið en Sigurður Gísli Bond sest á bekkinn.

Byrjunarlið Kórdrengir:
1. Óskar Sigþórsson (m)
4. Fatai Gbadamosi
6. Hákon Ingi Einarsson
7. Marinó Hilmar Ásgeirsson
9. Daníel Gylfason
10. Þórir Rafn Þórisson
14. Iosu Villar
15. Arnleifur Hjörleifsson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
21. Guðmann Þórisson
22. Nathan Dale

Byrjunarlið Afturelding:
1. Esteve Pena Albons (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
10. Kári Steinn Hlífarsson
14. Jökull Jörvar Þórhallsson
17. Ásgeir Frank Ásgeirsson
21. Elmar Kári Enesson Cogic
23. Pedro Vazquez
25. Georg Bjarnason
26. Hrafn Guðmundsson
33. Andi Hoti
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner