Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 28. janúar 2023 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Man Utd og Tottenham eiga bikarleiki
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA

Manchester United og Tottenham Hotspur mæta til leiks í 32-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld og spila bæði við lið úr Championship deildinni.


Fjörið hefst þó í hádeginu þegar Leicester City og Leeds United heimsækja Walsall og Accrington Stanley.

Southampton tekur svo á móti Blackpool á meðan Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley heimsækja Ipswich Town. Á sama tíma á Fulham spennandi leik við Sunderland og þá fara nokkrir spennandi slagir fram á milli neðrideildaliða.

Tottenham heimsækir Preston North End í næstsíðasta leik dagsins, áður en Man Utd fær Reading í heimsókn á Old Trafford í kvöldleiknum.

Síminn Sport er með sýningarrétt á enska boltanum.

ENGLAND: FA Cup
12:30 Walsall - Leicester
12:30 Accrington Stanley - Leeds
15:00 Southampton - Blackpool
15:00 Sheff Wed - Fleetwood Town
15:00 Luton - Grimsby
15:00 Ipswich Town - Burnley
15:00 Fulham - Sunderland
15:00 Bristol City - West Brom
15:00 Blackburn - Birmingham
18:00 Preston NE - Tottenham
20:00 Man Utd - Reading


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner