Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
   fös 19. ágúst 2011 16:30
Mist Rúnarsdóttir
Berglind Bjarna: Heiður að spila á Laugardalsvelli
Kvenaboltinn
,,Ég er hrikalega spennt. Það að spila á Laugardalsvelli er mikill heiður og manni kitlaði í tærnar síðustu helgi að horfa á KR-ingana vinna," sagði Berglind Bjarnadóttir, leikmaður KR í samtali við Fótbolta.net.

Berglind mun leika sinn fyrsta bikarúrslitaleik á morgun þegar Reykjavíkurrisarnir KR og Valur leiða saman hesta sína.

,,Þetta er bara 50/50 leikur, það er ekkert annað. Staðan í deildinni skiptir engu máli. Við höfum fulla trú á okkur og getum unnið öll lið í deildinni, líka Val," sagði Berglind um leikinn.

Valsliðið er vel spilandi og Berglind segir mikilvægt að KR-liðið stöðvi flæðið í leik Valsara ætli þær sér sigur á morgun.

,,Þær eru rosalega vel spilandi. Það þarf að stoppa þetta flæði sem þær náðu upp í fyrri leiknum á móti okkur. Þær náðu að spila boltanum fram og til baka og þá endar það illa. En það þarf bara að stoppa þetta og sækja á þær. Ég held að það sé markmiðið hjá okkur að reyna að sækja aðeins á þær og láta þær bakka."

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Berglindi í sjónvarpinu hér að ofan.
banner
banner