Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
   lau 20. ágúst 2011 18:45
Alexander Freyr Tamimi
Hólmfríður: Það eru nokkrar medalíur í safninu
Kvenaboltinn
„Þetta var mjög gaman. Það er alltaf jafn gaman að vinna bikar,“ sagði Hólmfríður Magnúsdóttir eftir að hafa orðið bikarmeistari með Val í dag.

Lestu um leikinn: KR 0 -  2 Valur

Hólmfríður lék áður með KR og varð bikarmeistari með Vesturbæjarliðinu en hún segir að það sé alltaf jafn gaman að vinna titla.

„Það er alltaf jafn gaman að vinna bikar og það var mjög gaman að vinna með Val í dag.“

Aðspurð segist Hólmfríður hafa verið ánægð með frammistöðu Valsliðsins.

„Já, já en við duttum svolítið niður í fyrri hálfleik og KR hefði getað jafnað þarna í lokin en við settum á þær snemma í seinni þannig að það var mjög ljúft.“

„Nei, í rauninni ekki en ég hafði smá áhyggjur þarna í svona 10 mínútur í fyrri hálfleik en við gírum okkur bara upp í seinni hálfleik.“


Hólmfríður varð síðast bikarmeistari með KR árið 2008 og er því komin með nokkrar medalíur í safnið þó hún muni ekki alveg hvað þær eru orðnar margar.

„Ég man það ekki alveg en man allavegana að ég varð bikarmeistari hérna 2008 með KR þannig að það eru nokkrar medalíur í safninu.“
banner
banner