„Ég er ánægð. Það er ekki annað hægt en að vera ánægð með þetta en þetta var svolítið tæpt,“ sagði Björk Björnsdóttir, markvörður Fylkis, í samtali við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur á Þrótti fyrr í dag.
Fylkisliðið lék manni færri síðustu tuttugu mínútur leiksins eftir að Kristrúnu Kristinsdóttur, varnarmanni liðsins, var vikið af velli eftir að hafa brotið á Alexiz Hernandez, framherja Þróttar, sem var komin í gegn. Auk rauða spjaldsins fengu Þróttarar vítaspyrnu sem þær skoruðu úr. Björk segist ekki hafa séð atvikið almennilega.
„Hann sagði að hún hefði togað aftan í hana. Ég sá það ekki nógu vel sjálf en það verður bara að hafa það. Hann ætlaði fyrst að dæma aukaspyrnu en svo sagði línuvörðurinn að þetta væri víti.“
„Ég sá ekki hvenær brotið byrjaði en það er náttúrulega þannig að ef hún hefur togað aftan í manninn, sama hvort það er víti eða aukaspyrna, þá er það rautt spjald.“
Björk segir að það hafi verið erfitt fyrir Fylki að leika manni færri og að liðið hafi stressast upp við það.
„Kannski ekki fyrir mig sérstaklega, en fyrir liðið. Við vorum mjög stressaðar. Vorum byrjaðar að öskra og æpa og vissum ekki alveg hvað við vorum að gera. En við náðum að halda.“
Undir lok leiksins fengu Þróttarar nokkur góð færi til að jafna metin en Björk var frábær í markinu og átti góðar vörslur sem tryggðu það að stigin þrjú enduðu hjá Árbæingum.
„Það er alltaf mjög gaman að eiga svona úrslitavörslur eins og maður segir. Mér líður mjög vel með það.“
Næsti leikur Fylkis er strax á þriðjudag en þá mætir liðið KR. KR-ingar unnu síðustu viðureign liðanna þegar þau mættust í undanúrslitum bikarsins og Björk segir Fylkisliðið staðráðið í að hefna þeirra ófara.
„Við ætlum að vinna. Það kemur ekkert annað til greina. Það var mjög svekkjandi tap í undanúrslitunum þannig að það kemur ekkert annað til greina en að vinna,“ sagði Björk Björnsdóttir, hetja Fylkisstúlkna, að lokum.
Hægt er að horfa á viðtalið við Björk í sjónvarpinu hér að ofan.






















