,,Við vorum frekar rólegir. Ungu guttarnir mínir stóðu sig vel, þeir fengu flest allir sénsinn í kvöld og þetta var góður vetrarsigur," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar eftir 3-1 sigur á ÍR í kvöld.
Hinn ungi Þorri Geir Rúnarsson vakti athygli á miðjunni hjá Stjörnunni í kvöld en hann þykir minna á David Batty fyrrum miðjumann Leeds.
,,Ef menn eru að líkja honum við Batty þá er hann betri," sagði Bjarni léttur í bragði.
Danski varnarmaðurinn Alexander Scholz lék sinn fyrsta leik með Stjörnunni í kvöld og stimplaði sig inn með marki en Bjarni var ánægður með frumraun hans.
,,Mér fannst hann ágætur. Það er langt síðan hann spilaði leik og hann er nýkominn til landsins. Hann er aðeins búinn að anda að sér íslenska loftinu og mér fannst hann ágætur."
,,Skallamarkið hans var flott og þetta er strákur sem kann greinilega að spila vörn. Mér finnst hann sterkur einn á móti einum og fyrstu viðbrögð á honum eru jákvæð."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.





















