„Það var sterkt að koma til baka og ná að vinna leikinn," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 3-2 sigur á Fylki í kvöld. Árbæingar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik en FH náði góðri endurkomu.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 3 FH
„Þetta var klaufalegt af okkar hálfu. Við fengum ágætis færi til að skora í fyrri hálfleik en gáfum þeim tvö mörk. Leikmenn áttuðu á sig á því eftir fyrri hálfleikinn að þessi frammistaða var ekki boðleg og stigu upp."
Bjarki Gunnlaugsson, Atli Viðar Björnsson, Hákon Atli Hallfreðsson og Alen Sutej eru meðal manna sem eru á meiðslalista FH en Heimir reiknar með því að þeir verði allir komnir á fullt í æfingaferð liðsins til Portúgal.
Umræða hefur verið um það hvernig FH ætli að fylla skarð Matthíasar Vilhjálmssonar sem hefur verið lánaður til Start í Noregi. Verður lausnin fundin innan hópsins eða sóttur maður erlendis frá?
„Við erum að skoða þessu mál. Við teljum að við séum með menn sem geti spilað þessa stöðu. Auðvitað er missir í Matta Vill, frábær leikmaður og var fyrirliði liðsins. Þetta snýst um að aðrir stigi upp. Við munum flýta okkur hægt og sjá hvernig mars og apríl þróast áður en við förum að gera eitthvað róttækt"
Viðtalið við Heimi má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.






















