
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, ræddi við leikmenn landsliðsins um notkun á samfélagsmiðlum á fundi í gær. Um helgina smellti Sandra María Jessen, leikmaðurs Þórs/KA og landsliðsins, „like" á færslu á Twitter þar sem sú ákvörðun að hafa Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur, markvörð Þór/KA, ekki í landsliðinu er gagnrýnd. Í tístinu er gefið í skyn að það sé fáránlegt að hafa Sonný Láru Þráinsdóttur, markvörð Breiðabliks, í landsliðinu í stað Bryndísar.
Andri Rúnar Bjarnason, framherji Grindvíkinga, setti í kjölfarið færslu á Twitter þar sem hann sagði Söndru Maríu vera heilalausa. Andri baðst síðar afsökunar á því.
Andri Rúnar Bjarnason, framherji Grindvíkinga, setti í kjölfarið færslu á Twitter þar sem hann sagði Söndru Maríu vera heilalausa. Andri baðst síðar afsökunar á því.
„Auðvitað ræddum við þetta. Við erum með þá reglu ef það eru möguleg vandamál þá ræðum við um þau," sagði Freyr á fréttamannafundi í dag.
„Á fyrsta fundi förum við yfir venjur og viðmið sem við höfum og meðal annars hvernig á að koma fram á fjölmiðlum og í samfélagsmiðlum. Þetta var gott dæmi um það hvernig þú kemur ekki fram og við notuðum það."
„Það eru til stærri vandamál en þetta. Það er allt í góðu hjá Söndru Maríu og Sonný er hress að vanda. Andri er í toppstandi og heldur áfram að skora mörk og málinu er lokið hjá okkur öllum."
Freyr segir að leikmenn megi setja færslur á samfélagsmiðla á meðan á EM stendur.
„Gugga (Guðbjörg Gunnarsdóttur) verður að safna followers," sagði Freyr þegar hann leit á Guðbjörgu og hló.
„Við erum öll sammála um að það er í lagi að hafa samfélagsmiðla en þú verður að nota þá rétt. Þetta snýst um að vera klókur og rugga bátnum ekki af óþörfu. Þetta eru skarpir hnífar sem við höfum í skúffunni svo ég hef engar áhyggjur. Fólkið fær að komast nær liðinu. Þær fá að sýna hvað þær eru flottar og allir eru sáttir."
Sjá einnig:
Andri Rúnar kallaði Söndru Maríu heilalausa - Baðst svo afsökunar
Athugasemdir