Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Garnacho orðaður við fimm félög
Alejandro Garnacho.
Alejandro Garnacho.
Mynd: EPA
Fimm félög eru sögð berjast um Alejandro Garnacho, kantmann Manchester United.

Garnacho má fara frá United í sumar en talið er að félagið sé að biðja um 70 milljónir punda fyrir hann.

Þá eru fimm félög nefnd til sögunnar í tengslum við Garnacho en það eru Chelsea, Atletico Madrid, Napoli, Bayer Leverkusen og Aston Villa.

Þau eru öll sögð fylgjast með gangi mála hjá argentínska kantmanninum og gætu reynt að kaupa hann í sumar.

Napoli komst nálægt því að kaupa hann í janúar en félögin tvö komu sér þá ekki saman um kaupverð. Chelsea hafði líka mikinn áhuga á honum í janúar.
Athugasemdir
banner
banner