Það eru liðnir 20 mánuðir síðan Ísrael hóf hernaðaraðgerðir á Gaza í kjölfar fordæmalausrar árásar Hamas á Ísrael yfir landamærin þann 7. október 2023, þar sem um 1.200 manns létu lífið og 251 var tekinn í gíslingu.
Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas-samtakanna á svæðinu hafa að minnsta kosti 54.880 manns verið drepnir í Gaza síðan þá.
Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas-samtakanna á svæðinu hafa að minnsta kosti 54.880 manns verið drepnir í Gaza síðan þá.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, tjáði sig um atburðina þegar hann hlaut heiðursdoktorsnafnbót frá Háskólanum í Manchester á mánudag.
„Það er sársaukafult að sjá hvað er að gerast á Gaza. Mig verkjar í allan líkamann. Leyfið mér að vera skýr, þetta snýst ekki um hugmyndafræði. Þetta snýst ekki um hvort ég hafi rétt fyrir mér eða þú rangt fyrir þér. Þetta snýst bara um ástina á lífinu, um umhyggju fyrir náunganum," sagði Guardiola.
„Við getum haldið að þetta komi okkur ekkert við. En pössum okkur, við gætum verið næst. Næstu fjögurra eða fimm ára gömlu krakkar gætu verið okkar. Fyrirgefiði en lítið á krakkana mína. Maria, Marius og Valentina. Ég hef séð kornung börn á Gaza síðan þessi martröð byrjaði, ég er svo hræddur."
Athugasemdir