Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 10:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óvænt ekki í HM hópi Chelsea
Djordje Petrovic.
Djordje Petrovic.
Mynd: Chelsea
Enskir miðlar fjalla í dag um að nokkrir leikmenn í aðalliðshópi Chelsea verði ekki með liðinu þegar það fer á HM félagsliða í Bandaríkjunum.

Það eru þeir Raheem Sterling, Djordje Petrovic, Axel Disasi, Ben Chilwell, Renato Veiga og Joao Felix. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa leikið á láni frá Chelsea á liðinni leiktíð. Eini lánsmaðurinn sem fær kallið í hópinn er Andrey Santos.

Mesta furðu vekur fjarvera serbneska markmannsins Petrovic sem átti gott tímabil með Strasbourg í Frakklandi. Chelsea var sterklega orðað við Mike Maignan hjá AC Milan en ekkert varð úr þeim kaupum og því var búist við því að Petrovic yrði einn af markmönnunum sem færu á mótið.

Samkvæmt Telegraph hafa mörg félög nú áhuga á því að fá Petrovic í sínar raðir.

Christopher Nkunku, sem hefur verið sterklega orðaður í burtu frá Chelsea, er í HM hópnum.

Chelsea mætir LAFC, Flamengo og Esperance í riðlakeppni mótsins.
Athugasemdir