Heimild: Vísir

Arnór Ingvi Traustason fékk það óþvegið frá sérfæðingnum og fyrrum landsliðsmanninum, Lárusi Orra Sigurðarsyni, þegar Lárus ræddi um fyrri hálfleik Íslands gegn Norður-Írlandi á Stöð 2 Sport í gær. Lárus kallaði eftir því að Arnór Ingvi yrði tekinn af velli og varð hann að ósk sinni því Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á fyrir Arnór í hálfleik.
Arnór hafði gert sig sekan um slæm mistök í fyrri hálfleiknum þegar hann klobbaði leikmann Norður-Íra nálægt íslenska teignum, en náði ekki boltanum aftur og heimamenn skoruðu strax í kjölfarið eina mark leiksins.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska landsliðsins, ræddi við Stöð 2 Sport eftir vináttuleikinn í gær og mátti heyra að hann var ósáttur við Arnór án þess þó að nefna hann á nafn.

Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 - 0 Ísland
„Mér leið eins og við værum komnir með góð tök á leiknum, en það má ekki gleyma að þetta eru erfiðir útivellir og ég held að Norður-Írarnir hafi ekkert ætlað að gefa okkur eftir boltann. Ég held að þeir hafi ætlað að pressa, en þeir bara fundu ekki leiðina. Við náðum að leysa þeirra leik nokkuð auðveldlega, en svo kom lítið út úr því þegar við fórum framar á völlinn. Það vantaði hlaup inn fyrir og það vantaði smá ákefði.“
„Við getum ekki bara haldið boltanum til að klukka einhverja posession-tölu. Við verðum að vera miklu áræðnari og fljótari með ákvarðanatöku."
„En það var áberandi hversu margir tæknifeilarnir voru. Við vorum mikil að reyna að klobba á eigin vallarhelmingi og svona barnaskapur sem á ekki alveg við á alþjóðlegu leveli.“
„Við gáfum þeim þeirra móment sem þeir voru að bíða eftir. Markið þeirra kemur eftir smá pressu á okkur þar sem við erum að missa boltann og þeir héldu okkur niðri á okkar vallarhelmingi töluvert lengi. Þá fara áhorfendur, sem voru búnir að vera mjög hljóðir fram að því, að styðja meira við bakið á þeim, sem endaði síðan með marki," sagði Arnar við Stöð 2 Sport eftir leikinn.
Næstu leikir íslenska liðsins verða í september þegar undankeppnin fyrir HM 2026 hefst.
Athugasemdir