Leroy Sane er óvænt á leið til Tyrklands þar sem hann verður leikmaður Galatasaray.
Sky í Þýskalandi segir frá þessu og Fabrizio Romano er með sömu upplýsingar; Sane hefur náð samkomulagi við Galatasaray um samning til 2028.
Sky í Þýskalandi segir frá þessu og Fabrizio Romano er með sömu upplýsingar; Sane hefur náð samkomulagi við Galatasaray um samning til 2028.
Romano segir að umboðsmenn Sane séu staddir í Istanbúl til að ganga frá skiptunum.
Sane hefur verið í viðræðum við Bayern München um nýjan samning en þær hafa ekki gengið upp. Samningur hans rennur út núna um mánaðarmótin.
Arsenal og Tottenham var einnig boðið að fá Sane en núna nýverið blandaði Al-Hilal frá Sádi-Arabíu sér í baráttuna en Galatasaray var það félag sem lagði mest á sig að fá kantmanninn.
Athugasemdir